Fyrirtækið
Vélsmiðja Orms og Víglundar ehf er með höfuðstöðvar á Kaplahrauni 14 – 17 í Hafnarfirði. Þar er skrifstofa ásamt stóru plötuverkstæði og renniverkstæði. Vélsmiðjan er mjög vel tækjum búin til nýsmíði og til allrar þjónustu við skipaiðnaðinn. Unnið hefur verið við nýsmíði og uppsetningu á tækjum og búnaði fyrir gufuvirkjanir, vatnsaflsvirkjanir, mjólkurbúin, lyfjaverksmiðjurnar og iðnaðarfyrirtækin í landinu.
Vélsmiðjan hannar og smíðar gufukerfi og framleiðir háspennta og lágspennta rafskautskatla til gufuframleiðslu, rafskautskatlar frá okkur eru í notkun hjá fjarvarmaveitum, mjólkurbúum, fiskimjölsverksmiðjum og þvottahúsum.
Vélsmiðjan hefur framleitt og flutt inn plötuvarmaskipta í yfir þrjátíu ár aðallega frá APV og SONDEX í Danmörku. Einnig sjáum við um að útvega tæki og búnað í skip og verksmiðjur.