- Fyrirtækið ræðst aðeins í verkefni sem hæfa færni, þekkingu og hæfni starfsmanna og að það geti tryggt yfirráð yfir viðeigandi innviðum.
- Fyrirtækið leggur áherslu á að rýna þarfir og væntingar viðskiptavinarins í upphafi verks, góð og upplýsandi samskipti meðan á framkvæmdum stendur og ánægju hans að verki loknu.
- Starfsmenn fyrirtækisins hljóta þjálfun og búa yfir hæfni til þeirra verkefna sem fyrirtækið tekur að sér. Stjórnendur þekkja og efla hæfni starfsmanna og úthluta þeim verkefnum við hæfi á hverjum tíma. Starfsmenn starfa við eins öruggar og umhverfisvænar aðstæður og kostur er, í samráði við vinnueftirlit og umhverfisstofnun. Starfsmenn njóta kjara í samræmi við menntun, starfsreynslu og getu.
- Fyrirtækið greinir áhættur og gerir áhættumat fyrir öryggi og umhverfi starfsmanna og starfseminnar í heild með hliðsjón af stöðlum.
- Stjórnendur fyrirtækisins vinna að uppbyggingu gæðastjórnunar með hliðsjón af ISO 9001:2015 sem lýst er á skjalfestan hátt.
- Stjórnendur framfylgja lögum og reglum er varða rekstur og rekstrarumhverfi fyrirtækisins og leitast við að rýna sérhvert verkefni og upplýsa og leiðbeina starfsmönnum til löglegra athafna.
- Með því að beita aðferðum gæðastjórnunar til að ná fram stöðugum umbótum, úrbótum og endurskipulagningu og hafa til staðar markvirkt gæðakerfi, mun Vélsmiðja Orms & Víglundar ehf. uppfylla þarfir viðskiptavina.